5.11.2007 | 20:20
Komið þið sæl
Það er orðið svo langt síðan ég hef sett eitthvað á þessa bloggsíðu að mér finnst tími til kominn að punkta eitthvað niður . Þetta er búin að vera ansi lífleg helgi eins og svo oft áður. Það var nú vinnan, ég var á morgunvöktum um helgina og það var hressandi sprettur þar. Á föstudagsmorgun byrjaði bocciamótið sem ég var búin að nefna hér á þessum vettvangi. það þarf ekki að hafa mörg orð um það þetta var mjög skemmtilegt. Ég var svolítið eins og álfur út úr hól því ég hafði aldrei svo mikið sem séð þetta spilað en með góðri aðstoð var hægt að segja mér til svo ég náði að skila mínu. Það voru um 180 keppendur sem tóku þátt í mótinu og mikill fjöldi aðstoðarfólks og var mjög kátt í höllinni. Á laugardagskvöldið var glæsilegt lokahóf með góðum mat og dúndrandi balli á eftir. Þar tvistaði maður og tjúttaði og hristi alla skanka.sem sagt mjög gaman. Þetta er búinn að vera mikill undirbúningur og vinna því er ánægjulegt þegar allt virðist hafa gengið upp.
Þá fer að styttast tíminn sem maður hefur til að innbyrða lærdóminn á þessari önn. Tíminn er svo fljótur að líða og mér finnst ég eiga svo mikið eftir.nú ætlar einn tengdasonurinn að fara að leiða mig í allan sannleika um Exelforritið svo ég sendi öllum bestu kveðjur
Athugasemdir
já tíminn hann er orðinn ansi stuttur fram að prófum
eins gott að halda sér við efnið. Gaman að mótið tókst svona vel, sá frá því í sjónvarpinu. Gangi þér vel með exelið
kveðja Auður
Margrét Auður Óskarsdóttir, 6.11.2007 kl. 12:06
hi mom
Þórunn Óttarsdóttir, 6.11.2007 kl. 13:00
Hæ hæ tengdó takk fyrir kommentið hjá mér.. já þetta verður örugglega bara fínnt þarna í norge hjá syni þínum og okkur líka.. kveðja adda
Aðalheiður Kristín Rúnarsdóttir, 8.11.2007 kl. 11:44
Já það er áfangi þegar exelin er búin þetta er svo mikil handarvinna... en þetta hefst allt....gangi þér vel.....kv Anna Ruth
Anna Ruth Antonsdóttir, 11.11.2007 kl. 08:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.