Þá er að bretta upp ermarnar

Komið þið öll blessuð og sæl lesendur góðir og gleðilegt nýtt ár.  Hér á bæ hefur lífið að mestu gengið sinn vanagang sem betur fer maður  er ekki svo mikið gefinn fyrir breytingar  Jól og áramót liðu í rólegheitum vinna og frí til skiptis. En  nú fer að líða að því að maður þarf að hrista af sér slenið og líta upp úr skáldsögunum því nú byrjar skólinn í vikunni.  Það er gott að hugsa til þess að nú sígur á seinni hlutann og það verður gaman að hitta skólasysturnar í mars.  Mér finnst lítið að vera bara í 2 fögum var ekki búið að nefna 3?   Eins er spennandi að vita hvar maður lendir í verknáminu og hvort maður hefur eitthvað um það að segja.

Eg hef lofað mér því að standa mig betur í að hitta vinina mína fara oftar á kaffihús og hætta að láta letina yfirbuga mig á kvöldin síðan á eftir að koma í ljós hvernig efndirnar verða.  Vonandi stend ég mig betur en nýja þvottavélin sem ég sagði ykkur frá um miðjan nóvember.  Hún hefur sko ekki staðið sig hún hefur ekki getað farið eftir einföldustu leiðbeiningum og beiðnum vindur bara þegar hún nennir því og allt eftir því.  Nú eru dagar hennar líka taldir hér á þessu heimili og nærveru hennar ekki óskað lengur.  Hún verður sótt í fyrramálið og önnur kemur í hennar stað svona fer nefnilega ef maður stendur sig ekki manni verður bara skipt út .  Því segi ég það ætli ég panti mér ekki bara fast borð á Bláu könnunni og taki enga sjensa.

Hafið það gott öll og heyrumst fljótlega  Gagga 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Pétursdóttir

Góðan daginn Ragnheiður, gaman að frétta frá þér (bansett  þvottavélin, ekkert gaman með hana). Nú er ég að bíða eftir að geta farið að byrja, það er alltaf spennandi að sjá hvernig næsta önn verður. Hvaða bækur, hvernig verða verkefnin og s.fr. allt forvitnilegt. Svo hugsar maður, þessi önn og þá fer þetta að styttast, þegar allt verður búið, hvað gerir maður þá ? kv,Kolbrún Pé.

Kolbrún Pétursdóttir, 22.1.2008 kl. 10:50

2 Smámynd: Þórunn Óttarsdóttir

kolbrún mín, maður skellir sér bara í geðið þegar þetta er búið

Þórunn Óttarsdóttir, 22.1.2008 kl. 12:04

3 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Gleðilegt árið og takk fyrir þau gömlu. Er löngu hættur öllum svona áramótaheitum og þarf því ekkert að vera að ergja mig á efndunum

Kv. í Heiðardalinn

Þorsteinn Gunnarsson, 23.1.2008 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband